Uploaded December 2025 | Updated September 2026, 3 hours ago
Þann 24. nóvember barst Veðurstofunni ljósmynd sem sýndi skriðu sem hafði nýlega fallið ofarlega í Innra-Hólafjalli ofan Eskifjarðar. Á myndinni sást mikill snjór til fjalla en jafnframt áberandi sár í hlíðinni þar sem skriðan hafði fallið. Í ljósi þess að hiti hafði verið vel undir frostmarki í fjallahæð og talsvert hafði snjóað síðustu vikur þótti þessi skriða óvenjuleg. Var því ákveðið að senda snjóathugunarmenn svæðisins með dróna til að fljúga yfir svæðið.
Í ljós kom að upptökin eru í urð rétt neðan við fjallstoppinn, í um 1050 m h.y.s. Ummerki benda til þess að urðin hafi að öllum líkindum verið frosin, þar sem stórar blokkir af frosnum setlögum sáust bæði í upptökum og í úthlaupi skriðunnar. Þessi ummerki sjást vel á ljósmyndum og myndbandi sem Hlynur Sveinsson, snjóathugunarmaður í Neskaupstað, tók með dróna laugardaginn 29. nóvember.
Út frá drónamyndunum hefur verið áætlað að heildarrúmmál skriðuefnisins sé um 130.000 m³ og að úthlaupslengdin sé um 450 m.
Gervitunglagreiningar benda til þess að skriðan hafi fallið á tímabilinu 14.–20. nóvember.