Fleiri jarðskjálftar, nýtt sjónarhorn: Bárðarbunga @vedurstofan
Fleiri jarðskjálftar, nýtt sjónarhorn: Bárðarbunga  @vedurstofan
Uploaded August 2014 | Updated September 2026, 2 hours ago
Staðsetning, dýpi og aldur jarðskjálfta við Bárðarbungu 16. – 26. ágúst 2014: Í þessu myndbandi eru jarðskjálftar nærri Bárðarbungu skoðaðir í tímaröð og þrívídd á 10 daga tímabili. Sjónarhornið er þó nokkuð sérstakt en staðsetning á yfirborði er sýnd á landlíkani neðst í myndbandinu, í stað efst eins og venja er, til þess að auðveldara sé að átta sig á samhengi staðsetningar og dýpis skjálftanna. Gráu jafnhæðarfletirnir tákna ákveðið dýpi frá yfirborði sem er 0 km, 5 km og 10 km. Litakóði skjálftanna táknar dagafjölda frá 16. ágúst (dagur 0) sem almennt er talinn upphafsdagur núverandi atburðarásar. Stærð skjálfta er ekki sýnd en allir punktar eru af sömu stærð. Sömu skjálftar eru sýndir á landlíkaninu og í þrívíddinni svo hægt sé að átta sig betur á staðsetningu á yfirborði og dýpi. Athygli er vakin á því að hæð og dýpi eru ýkt fimmfalt til þess að draga betur fram landslag á yfirborði og ná fram betri aðgreiningu á dýpi skjálftanna.
Fleiri jarðskjálftar, nýtt sjónarhorn: BárðarbungaHraunflæðilíkan: Holuhraun til 05.09.2014Loftslagsrannsóknir á Veðurstofu Íslands
Veðurstofa Íslands |

Fleiri jarðskjálftar, nýtt sjónarhorn: Bárðarbunga

SHARE TO X SHARE TO REDDIT SHARE TO FACEBOOK WALLPAPER