Jarðskjálftar við Bárðarbungu í þrívídd @vedurstofan
Jarðskjálftar við Bárðarbungu í þrívídd  @vedurstofan
Uploaded August 2014 | Updated September 2026, 3 hours ago
Staðsetning, dýpi og aldur jarðskjálfta við Bárðarbungu 16.-20. ágúst 2014: Veðurstofa Íslands birtir hér þrívíddarframsetningu á jarðskjálftum í Bárðarbungu, höfundur er Bogi B. Björnsson. Sérfræðingar Veðurstofu Íslands treysta mikið á jarðskjálftamælingar til þess að meta stöðuna hverju sinni. Til þess að greina og túlka mælingarnar er framsetning gagnanna lykilatriði og ein mjög gagnleg leið er að skoða mælingar í þrívídd. Í myndbandinu hér að ofan hafa mælingar, sem innihalda staðsetningu og dýpi jarðskjálftamiðja (litaðir punktar), verið teiknuð upp fyrir landsvæðið undir Bárðarbungu og hreyfimynd útbúin. Sjónarhornið byrjar líkt og horft sé á hefðbundið kort en breytist síðan til að sýna hvað er að gerast undir yfirborðinu. Litur punktanna táknar dagsetningu þeirra þannig að fyrst koma rauðir punktar, næst appelsínugulir, gulir, ljósgrænir og loks grænir en tímabilið sem um ræðir er 16.-20. ágúst 2014. Stærð jarðskjálfta kemur ekki fram en allir skjálftapunktar eru teiknaðir jafn stórir í myndbandinu. Sömu punktar eru sýndir undir yfirborðinu og ofan á yfirborðinu til að átta sig betur á samhengi staðsetningu og dýpis. Dýpi skjálftana er hægt að lesa út frá gráu flötunum á myndbandinu en þeir eru staðsettir á 0 km, 5 km og 10 km dýpi undir sjávarborði. Athygli er vakin á því að hæð og dýpi eru ýkt fimmfalt til þess að draga betur fram landslag á yfirborði og ná fram betri aðgreiningu á dýpi skjálftanna. Þessi ýking sést best þegar borin er saman lengd og breidd svæðisins sem er u.þ.b. 100 km x 70 km m.v. dýpsta gráa flötin sem er á 10 km dýpi.
Jarðskjálftar við Bárðarbungu í þrívíddDagur íslenskrar náttúru 2020Berghlaup í Öskju 2014Aðlögun vegna loftslagsbreytingaHraun og aska í HrunagiliSkagafjörður skelfurÁrsfundur Veðurstofu Íslands - 2018Skriða í Innra-Hólafjalli ofan EskifjarðarGervigreind við rauntímavöktun eldgosa á ReykjanesiAlþjóðlegur dagur kvenna og stúlkna í vísindum 2021SNJÓR í starfsemi Veðurstofu ÍslandsAðlögun að breyttum heimi – hefjum samtalið - Upptaka frá fundi
Veðurstofa Íslands |

Jarðskjálftar við Bárðarbungu í þrívídd

SHARE TO X SHARE TO REDDIT SHARE TO FACEBOOK WALLPAPER