ÍslandsrásinÖxnadalsheiðin getur verið ákaflega leiðinleg, og blúsuð svo hér hljómar hún eins og ég sé hana stundum þó þessi dagur hafi verið þokkalegur. This is the Öxnadalsheiði Mountain road in north Iceland with appropriate music.
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
Ekið yfir Öxnadalsheiði með viðeigandi tónlistÍslandsrásin2025-02-26 | Öxnadalsheiðin getur verið ákaflega leiðinleg, og blúsuð svo hér hljómar hún eins og ég sé hana stundum þó þessi dagur hafi verið þokkalegur. This is the Öxnadalsheiði Mountain road in north Iceland with appropriate music.
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comSíldartorfur í Eyjafirði fangaðar með drónaÍslandsrásin2025-08-17 | Síldin er komin til Eyjafjarðar en ég stóðst ekki mátið að fanga þetta með dróna því svona sér maður ekki á hverjum degi. Þetta virtust vera 5-10 torfur en sviðsmynin breyttist nokkuð hratt og það var mikil hreyfing á torfunum sem gætu hafa verið að forðast hval sem ég sá bregða fyrir eða elta æti. En hverju sem því líður þá var þetta skemmtilegt viðfangsefni sem skaffaði mér myndefni sem nýtist mér í öðrum verkefnum.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Djúpivogur - Höfn - Time Lapse vegaupptaka í leiðindaveðriÍslandsrásin2025-08-06 | Þetta var ekki draumatúrinn þó leiðin sé yfirleitt skemmtileg en fyrst myndavélin var í gangi var alveg eins gott að leyfa þessu að flakka með öðru enda er tilgangur rásarinner ekki að sýna sérvalin atriði frá íslandi heldur bara það ísland sem er á hvaða tíma sem er.
Not the favourite view from my country, just Iceland as it sometimes is.
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Skriðan við Dettifoss skoðuð í Júlí 2025Íslandsrásin2025-07-27 | Það er býsna mikið af grjóti sem kom úr berginu en hvort það er næg ástæða til að loka pallinum mánuð eftir mánuð er auðvitað ákvarðanafælni hins opinbera. Annað hvort er staðsetning pallsins í lagi, eða ekki, og ef staðsetningin telst varhugaverð er þá þarf bara að færa pallinn. En ætli lendingin verði ekki sú að skerða aðgengi að fossinum mánuðum eða árum saman á meðan einhverjum pappírum er ýtt á milli skrifborða.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Mengun frá eldgosinu á Reykjanesi byrgir Akureyringum sýnÍslandsrásin2025-07-18 | Akureyringar sem sjá ekki Vaðlaheiði eða Súlur í nokkra klukkutíma eiga til að verða órólegir og styggir svo áþján þeirra er meiri en annarsstaðar er fjöllin þeirra hverfa í mengun svo samúð og samhugur landsmanna er að sjálfsögðu með þeim.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Býsna vænlegt mýflugnager við Ljósavatn sumarið 2025Íslandsrásin2025-07-08 | Þetta var alveg býsna þétt mýflugnager sem blasti við mér frá þjóðveginum þar sem hann skerst inní vatnið en þar var líka fiskur og ekki skorti hann æti með alla þessa veislu flögrandi um við sólarlag, en túristarnir voru ekki eins þakklátir.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Nýjasti bærinn á íslandi - Lónsbakkahverfi í HörgársveitÍslandsrásin2025-06-29 | Það má kalla þennan bæ alveg glænýjan en hverfið byrjaði með byggingavöruverslun sem fór á hausinn, þá kom KEA með sínar byggingavörur en þeir gáfust líka upp, rétt eins og Húsasmiðjan/Blómaval svo nú er þarna einhverskonar iðnaðarreitur. Og sagan sannar auðvitað að Akureyringar sækja ekki í vatnið handan læksins en þarna hefur þó byggst upp allnokkur íbúabyggð í kringum sláturhúsið þar sem reynt að lokka Akureyringa á svæðið með lægra lóðaverði. Bærinn er þó nafnlaus enn og Lónsbakkahverfi finnst mér slök hugmynd, hvergi er lón að finna og einu bakkarnir eru málningarbakkarnir sem seldir voru þarna í denn. Og að bæjarnafn innihaldi lýsinguna "hverfi" er auðvitað stórfellt metnaðarleysi svo ég legg til hugmyndasamkeppni að bæjarnafni fyrir þessa nýju byggð.
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Hvað myndi Jón Sigurðsson segja um bókun 35 - Matrix útgáfanÍslandsrásin2025-06-26 | Hér er gervigreind og önnur tækni að leika sér með hina alræmdu bókun 35 sem hefur fengið fremur litla umfjöllun miðað við umfang og tilefni, en hvað myndi Jón SIgurðsson segja í dag? Mér finnst pælingin þess virði því það tók jú langan tíma að fá það sjálfstæði sem smám saman er verið að kroppa af okkur, stundum undir faldi lagabálka, en það er bara þannig. Gervigreindartól verða sífellt skemmtilegri en stjórnmál og stundum alveg hættulega góð en þetta vídeó tók ekki nema rúman klukkutíma í framleiðslu en með því að nostra við svonavídeó í einn dag eða svo hefði mátt ná þessu ótrúlega góðu, en lip-sync á íslensku er snúnara en á ensku, og svo verða sjálfvirku tólin sífellt betri en ég nota þessa tækni töluvert og það mun aukast í framtíðinni þó minn atvinnugrinnur sé meira bundinn við hefðbundið myndefni úr raunheimum.
Um rásina Tónlist og effectar eru frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Grindhvalir stranda í Ólafsfirði - Tillitsleysi eða bara slys - Drónavídeó frá byrjunÍslandsrásin2025-06-22 | Sagan af þessu flotta björgunarverkefni hefst þegar það er byrjað að smala hjörðinni fram og til baka og síðan mætir slatti af sæþotum á svæðið en ég verð að taka fram að einhverjar æfingar fóru fram í höfninni eins og um ferðaþjónustu væri að ræða svo það er ekki eins og það væri verið að æða á eftir þeim umhugsunarlaust. En um tíma var hjörðin býsna innilokuð en þá halda sæþoturnar upp að fjörunni þar sem hvalatorfan strandaði, gúmmíbáturinn eltir lengur en ég varð að skipta um rafhlöðu og á meðan fer hjörðin í fjöruna.
Svo ég á ekki myndefni sem spannar þessar mínútur en sæþoturnar sem höfðu verið að sigla rétt við fjöruna höfðu siglt af vettvangi í millitíðinni og ein spurningin er hvort það hafi gert útslagið og fælt þá í fjöruna á meðan sæþoturnar brunuðu út fjörðinn. Hver svo sem niðurstaðan er þá þarf ákveðna aðgát og vonandi má læra eitthvað af þessu en það var erfitt að hlusta á dýrin á meðan þau velktust um í fjörunni og ég á vart orð í eigu minni til að lýsa því hvað björgunarfólk vann erfitt starf. Ég myndaði svo mikið að ég þarf apeins meiri tíma til að vinna úr því en þangað til minni ég á að áskrift að þessari rás er og verður alltaf ókeypis, en áskrift er fyrst og fremst hjálp með útbreiðslu til að réttlæta vinnuna sem fer í að safna hér myndefni.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Do Whales Have Bad Breath - Ungrateful Pilot Whale in IcelandÍslandsrásin2025-06-21 | Shot during a resque operation in Ólafsfjörður, Iceland on June 21st 2025 when 40-56-0 whales stranded on a sandy beach but the local SAR teams rescued them all.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Íslenskar geitur að háma í síg lúpínu - Er lausnin fundin?Íslandsrásin2025-06-20 | Mig hafði lengi vantað hina íslensku landnámsgeit í myndasafnið en átti alls ekki von á að finna hana við þessar aðstæður sem voru reyndar dálítið skondnar. Þær höfðu greinilega sloppið og voru komnar að þjóðveginum á austurhluta Hegraness austan Sauðárkróks. Þegar ég kom auga á hjörðina og notaði tækifærið til myndatöku áþá spændu þær í sig lúpínu af miklum móð en ég verð að viðurkanna að þetta vissi ég ekki að væri á fæðulistanum þeirra. En ef þessi gróður er þeim ekki óhollur þá er jafnvel hér dæmi um hluta af þeirri lausn að grisja lúpínu til að halda í skefjum. En annars er bara gaman að horfa á þær, og mynda auðvitað.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Hraundrangi og Öxnadalur - 360 gráðu hringferðÍslandsrásin2025-06-16 | Þessi hringferð fangar ágætlega þennan þverskurð af hraunlögum undir dranganum og allar þessar skriður sem hafa fallið í dalnum sem vekur upp margar spurningar en upplýsingar héðan eru mjög almennar og ekkert sérlega spennandi gagnvart jarðfræði. Ég linka hér á annað myndband sem ég tók að vetrarlagi.
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Lúpinan vaknar snemma í Hrísey - 29 Maí 2025Íslandsrásin2025-05-30 | Þetta óhefðbundna sjónarhorn er prýðilegt gróðurfarskort sem sýnir alla eyjuna í einu stuttu rennsli en vorið var snemma á ferðinni og kom með krafti svo lúpínan poppar vel. En hvort sumarið verði eins gott læt ég ósagt en vona það besta því þetta var tekið með nýjasta drónanum í flugflota íslandsrásarinnar og söfnun myndefnis heldur áfram af fullum krafti svo ég minni á áskriftartakkann.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Skrautlegasti bíll á íslandi fannst á SvalbarðseyriÍslandsrásin2025-05-29 | Hvað gerist þegar krakkar fá nær takamarkalausa heimild til bílaskreytinga? Þessi óvenjulega en gangfæra Toyota er sköpunarverk barna á Svalbarðseyri en ég rakst á gripinn í sveitaferð að safnasafninu þar sem bílinn er falinn á bakvið tré. Býsna skemmtileg niðurstaða gagnvart litríkri myndatöku.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Nýja hótelið við Grenivík að taka á sig mynd - Hotel Lodge i Maí 2025Íslandsrásin2025-05-13 | Þetta verður jafnvel flottasta útsýnishótelið á landinu en byggingin virðist falla vel að hinu stórkostlega útsýni sem þarna er að finna. Þetta hefur þó tekið dágóðan tíma en fyrri ferðin var farin þegar framkvæmdir hófust og ég var orðinn forvitinn um að sjá hvernig þetta þróaðist. En þetta verður örugglega flott viðbót við aðra þjónustu hér nyrðra og maður vonar auðvitað að þetta gangi vel.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Íslandsbanki á Kirkjusandi - Niðurrif skoðað með dróna í Apríl 2024Íslandsrásin2025-04-28 | Þetta var mjög stórt niðurrifsverkefni á íslenskan mælikvarða en þegar ég kom við þá var að mestu búið að skafa húsið inn að berum stein og flokkun úrgangs stóð yfir fyrir lokaskrefið sem var að kremja steypuna utanaf járninu og endurvinna það sem hægt var. Lauk þá sögu þessarar merkilegu byggingar.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comEru Mýrar í Borgarbyggð heppilegt flugvallastæði fyrir nýjan alþjóðaflugvöllÍslandsrásin2025-03-28 | Þetta er nú meira að gamni gert en útsýnið yfir flatlendið er athyglisvert í ljósi þeirra pælinga sem hafa komið upp um staðsetningu nýs alþjóðaflugvallar fari svo að vandamálin á Reykjanesi aukist enn frekar. Það má þó kalla þetta langskot því það er jafnvel kvikuinnskot á ferð ekki svo langt frá þessum stað. Þetta var myndað á frekar bragðdaufum degi gagnvart birtu en nægjanlega góðri þó til að koma því til skila að hér er þrátt fyrir allt aðstaða fyrir flugvöll.
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comLitla Víti og Stóra Víti á ÞeistareykjabunguÍslandsrásin2025-03-27 | Þessir gígar eru alveg einstaklega tilkomumiklir úr lofti en Litla Víti ku vera hrunið þak yfir aðfærsluæð þeirri er fæddi þetta dyngugos. Aðalgígurinn, Stóra Víti er enn tilkomumeiri en hann virðist einnig vera hluti af þessu mikla jarðsigi. Tilurð gíganna er reyndar ekki útkýrð neitt sérstaklega mikið í þeim upplýsingum sem finnast á netinu sem er miður því það er mikið sjónarspil að fljúga yfir þetta svæði sem er aðgengilegt með moldarslóða frá Þeistareykjavirkjun sem heldur áfram niður í Kelduhverfi með afleggjara við gígana sem liggur m.a að Kröflu en nyrsti hluti kröfluhrauns sést vel í myndbandinu.
Öll tónlist á þessari rás er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comReykjavík og Þingvellir árið 1970Íslandsrásin2025-03-24 | Þetta er nokkuð dæmigert túristamyndband þess tíma sem mér áskotnaðist og þarna er t.d. Hallgrímskirkja í smíðum og þingvellir á meðan þar var aðstaða fyrir ferðamenn sem var gaman að sjá. Endilega smellið á áskriftartakkann til að fá tilkynningar um ný myndbönd á þessari rás sem inniheldur bæði gamal og nýtt myndefni frá íslandi.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comDvalarheimilið í Grindavík rifið - Hringrásarhagkerfi sem gleymdist?Íslandsrásin2025-03-20 | Ég myndaði þetta atriði upphaflega fyrir aðra rás sem ég rek sem fjallar um Grindavíkuratburðina í löngu máli með söfnun myndefnis með gerð heimildarmyndar í huga. Þetta er ekki atriðið sem ég átti von á eða hin fullkomna eyðilegging á verðmætu byggingarefni frá 2017.
Það er með nokkrum ólíkindum að horfa á stórvirkar vélar sem eru ekki endilega þær hentugustu mala saman ólíkum efnum í einn graut sem gerir ekkert annað en að flækja endurvinnslu svo ekki sé minnst á hina augljósu sóun. Hefði ekki verið ráð að leyfa einstaklingum eða fyrirtækjum að sjá um að hirða það sem var nýtilegt og skilja aðeins grjótið og stálið eftir?
Eftir þessa birtingu fékk ég ábendingu sem ég mæli með fyrir hagsýna íslendinga. https://www.efnisveitan.is/
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comFlogið yfir Hafnir á Reykjanesi að vetrarlagi - Lítill skrýtinn bær við hafiðÍslandsrásin2025-03-13 | Hér er flogið yfir Hafnir á Reykjanesi skömmu eftir lægðaganginn mikla í Mars 2025 en til að vera hreinskilinn þá finnst mér t.d. Akureyri vera mera spennandi bær.
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comEinstakt fyrirbæri - Nornapottur á SundhnúkagígaröðinniÍslandsrásin2025-03-11 | Maður er nú ýmsu vanur en þetta "whirpool effect" var ekki það sem ég bjóst við þennan daginn því meining var að eiga "before" myndefni af gígnum fyrir næstu breytingu. En heppilegur vindhraði úr heppilegri átt er væntanlega orsökin fyrir þessu sjónrænt skemmtilega fyrirbæri.
Öll tónlist á þessari rás er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comHekla - Selfoss / Time-Lapse í gegnum alvöru skúraskýÍslandsrásin2024-10-27 | Þetta var tekið upp til að prófa nýja myndavél en þetta verklega skúraský var eina tilbreytingin frá þessari flötu og frekar beinu leið um suðurlandsundirlendið sem hér er spiluð á ofurhraða með áströlskum eyðimerkurþema en öll tónlist á þessari rás er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comHeiti vegurinn við Hveradali skoðaður með hitamyndavél í Október 2024Íslandsrásin2024-10-25 | Þetta var ferð númer 7 að heita þjóðveginum við Hveradali en ég hef verið að fylgjast með breytingunum að gamni því ég er með dróna-hitamyndavél sem er býsna öflug. Það er augljóst að svæðið er að stækka og vegfarendur hafa einnig tekið eftir vaxandi gufustrókum og þá aðallega sunnan við þjóveginn nálægt litla húsinu við brekkuna.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna/thermal dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. justicelandic@gmail.com
Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina. GylfiTil hamingju Grindvíkingar með opnun bæjarins Grindavik - 21 Október 2024Íslandsrásin2024-10-24 | Ég var að sjálfsögðu einn fyrsti gesturinn sem heimsótti Grindvík þegar bærinn opnaði á ný með formlegum hætti og það gladdi mig mjög að sjá takmörkunum lyft og bænum þannig gefið súrefni til vaxtar á ný. Í versta falli verður Grindavík túristabæ en höfnin er og verður áfram mikilvæg fyrir alla suðurnesjamenn.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comMannlegt umferðarskilti við holóttan veg - Umhverfisstofnun á HálendinuÍslandsrásin2024-10-13 | Aðkoman að Landmannalaugum hefur aldrei verið eins slæm og sumarið 2024 en það var enn skrýtnara að þarna biði Umhverfisstofnun með fólk í vaktavinnu með milljónatuga ökutæki til þess eins að segja frá að það yrði rukkað fyrir ytra stæðið fjær tjaldsvæðinu.
Mér kom það reyndar ekkert við enda bara í skottúr til að skjóta vídeo sem mig vantaði og kaupa kaffibolla og sem sem seldi mér kaffið skildi ekkert í þessari hálendisútgerð Umhverfisstofnunar. Stúlkan sem stöðvaði mig var hinsvegar ákaflega almennileg í fasi en ég er ekki viss um að hún hafi sjálf skilið hversvegna hún ætti að standa þarna daginn út og inn til að sinna hlutverki sem umferðarmerki gera venjulega, og þau kosta líka miklu minna. Persónulega finnst mér að ríkið hefði átt að nota aurinn í að laga veginn því þó hann sé hálendisvegur þá voru síðustu kílómetrarnir til skammar vegna vinsælda svæðisins.
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comLúpína á íslandi - Samanburðarsvæði við landgræðslugirðinguÍslandsrásin2024-07-23 | Ég myndaði þetta í nágrenni Kópaskers í Júlí 2024 en þetta er með skemmtilegri dæmum sem ég hef séð því landgræðslugirðingin hjálpar við að draga fram þessi öflugu skil. Það eru auðvitað skiptar skoðanir á lúpínu og hvar sé best á leyfa henni að spretta úr spori. En enginn efast um hve öflug hún er. Um rásina: Tónlistin er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.com Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.Hið svokallaða sumar árið 2024 - Akureyri 22 JúlíÍslandsrásin2024-07-22 | Svona var umhorfs uppi á Hlíðarfjalli og Súlum nú um hásumar og í raun er ég illa svikinn og grautspældur yfir því að það skuli ekki vera heitara en raun ber vitni því það er búið að lofa okkur auknum hlýindum svo lengi. Ísland átti að verða þetta gósenland fyrir matvælaframleiðslu og þar er varla hægt að rækta kartöflur á norðurlandi lengur á meðan hafís dólar við landið hvað eftir annað. Sumarprógrammið mitt fyrir myndatöku er gottsem ónýtt.
Um rásina. Tónlistin er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Rásin er einnig sýningargluggi fyrir íslenskt myndefni og hluta þess má finna á Pond5 sem er risastórt markaðstorg sem hentar frábærlega fyrir þá sem vantar t.d. myndefni fyrir markaðsstarf. pond5.com/artist/Just2Icelandic?ref=Just2Icelandic
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comÍslenskt Grín - Fóstbræður - MóðguninÍslandsrásin2024-07-12 | Það má rökstyðja að þessi skettsi hafi elst vel í ljósi slaufunarmenningar og ofurviðkvæmni.Íslenskt Grín - Fóstbræður - Hið Fullkomna StefnumótÍslandsrásin2024-06-29 | Fóstbræðrahúmor af bestu sort.Íslenskt Grín - Tvíhöfði - MömmustrákurinnÍslandsrásin2024-06-29 | Góður húmor að hætti Tvíhöfða en þetta er gömul RÚV upptaka.Íslenskt Grín - Kaldur SalurÍslandsrásin2024-06-28 | Þessi skettsi úr RÚV þætti er alveg ljómandi frumlegur og góður.Íslenskt Grín - Fóstbræður - Sjúklingur í kómaÍslandsrásin2024-06-23 | Sótsvartur húmor að hætti fóstbræðra.Íslenskt Grín - Fóstbræður - Nýr vinnustaðurÍslandsrásin2024-06-23 | Benedikt Erlingsson minnir svolítið á Al pacino í þessum glúrna fóstbræðraskettsa.Flogið yfir Borðeyri að sumarlagi - Eitt minnsta kauptún á ÍslandiÍslandsrásin2024-06-23 | Hér er flogið yfir hinn forna verslunarstað Borðeyri að sumarlagi en það má t.d. finna ágæta aðstöðu fyrir ferðamenn í þessu sérstaka litla þorpi sem er eitt hið minnsta á íslandi.
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comÍslenskt Grín - Skortur á samkeppni meðan bænda og innfluttur kjúklingurÍslandsrásin2024-06-13 | Þessi skettsi er kannski meira svona raunveruleikasjónvarp?Íslenskt Grín - Barnabókin & barnatíminnÍslandsrásin2024-06-13 | Þessi skettsi er alveg stórskemmtilegur og stórundarlegur að auki, en hann virkaði a.m.k fyrir mig og er verðugur þess að vera hér með öðrum menningarverðmætum.Íslenskt Grín - Skortur á samkeppni meðan bænda og innfluttur kjúklingurÍslandsrásin2024-05-12 | Hér er skotið fast á bæði íslenskan og erlendan landbúnað og báðar hliðar hafa að sjálfsögðu eitthvað á bakvið málflutning sinn.Skemmdir á golfvellinum við Grindavík skoðaðar með dróna - Maí 2024Íslandsrásin2024-05-10 | Húsatóftavöllur er mikið skemmdur eftir atburðina þann 10. Nóvember 2023 en staðsetning hans er í sigdal við flekaskilin svo hann varð nokkuð auðveld bráð fyrir náttúruöflin. En þekkjandi Grindjána rétt þá verðar þeir farnir að spila brátt og laga það sem aflaga fór
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comEldgosið að klára sig og nýr gígur að myndast innan eldri gígsinsÍslandsrásin2024-05-07 | Það er mjög sérstakt að fylgjast með nýjum gíg myndast innan þess eldri þegar krafturinn minnkar og sletturnar ná ekki að viðhalda stærri hringnum. Ég veit ekki hversu algengt þetta fyrirbæri er en hitt er annað mál að kraftur eldgossins var ákaflega lítilfjörlegur þann 6. Maí þegar síðasta ferðin í myndbandinu var farið. Ég held því að þesum kafle sé að ljúka og sá næsti að hefjast.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comGígurinn við Sundhnúk í nærmynd þann 28. Apríl 2024Íslandsrásin2024-04-28 | Hér er gígurinn í nærmynd þann 28. Apríl en mér sýnist sem sjá megi afrennslisrásina í gígbrúninni. Mest af þessu er á venjulegum hraða en eitt myndskeið er á hálfum hraða. Ég á eftir að sýna fleyri svona myndbrot því ég hef myndað gíginn daglega í nokkra daga til að skoða breytingarnar sem eiga sér stað.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO Rás þessi er ákveðinn sýningargluggi fyrir eigin upptökur sem eru til sölu á vefsvæði sem kallast Pond5.: pond5.com/artist/Just2Icelandic?ref=Just2Icelandic
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comFyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kemur til Akureyrar - 14. Apríl 2024Íslandsrásin2024-04-15 | Fyrsta skipið þetta árið kom þann 14. Apríl og það sem vantaðu uppá sumarstemminguna er hér með bætt upp með sumartónlist að hætti rásarinnar sem fær alla tónlist og margskonar önnur grafísk tól hjá úrvalsfyrirtækinu Envato Elements: https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comHeimsmet í skíðastökki Hlíðarfjalli? - Stærsti skíðastökkpallur heims að verða tilbúinnÍslandsrásin2024-04-12 | Þetta er væntanlega stærsti skíðastökkpallur heims um þessar mundir en til stendur að hér verði sett heimsmet i skíðastökki á næstu dögum ef aðstæður leyfa. Dagsetning liggur ekki fyrir og þetta gæti alveg eins dottið uppfyrir því ef hann gerir rok þá flýgur gaurinn eitthvað útí sveit eftir þetta svakalega bratta aðflug.
Um rásina: Tónlistin er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO Rásin er einnig ákveðinn sýningargluggi fyrir eigin upptökur sem ég býð til sölu á Pond5. pond5.com/artist/Just2Icelandic?ref=Just2Icelandic
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comFótbolti í snjókomu á Akureyri - KA - HK - 7. Apríl 2024Íslandsrásin2024-04-07 | Þetta var býsna skemmtilegt myndefni þó ég leggi það ekki í vana minn að mynda fótboltaleiki, en þessu tækifæri mátti bara alls ekki ekki sleppa. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en ég rétt missti af fyrra markinu svo ég sé ekki að móðga neinn með því að birta aðeins HK markið, enda var markið sett á að sýna snjókomuna.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comJarðboranir með stærsta jarðbor á íslandi við ReykjanesvirkjunÍslandsrásin2024-04-05 | Jarðborinn Þór hefur verið að störfum við Reykjanesvirkjun undanfarið og það var bara ekki hægt að sleppa tækifærinu til að mynda þetta stærsta verkfæri á íslandi sem að auki gengur fyrir rafmagni eins og hver önnur borvél. Verðmiðinn er þó hærri eða 3.8 milljarðar króna en hér má finna upplýsingar um þetta verkefni. https://www.hsorka.is/um-okkur/frettir/almennar-frettir/jardborinn-thor-borar-a-nyju-svaedi-a-reykjanesi/
Um rásina: Tónlistin er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comVorstemming - Akureyri og Hlíðarfjall - Apríl 2024Íslandsrásin2024-04-04 | Þetta er svolítið "óvenjulegt" vor en stemmingin er alveg til staðar þrátt fyrir kuldann svo það er engin ástæða til að örvænta strax því eins og sjá má þá eru Akureyringar ákaflega lagnir við snjómokstur og úbúar flykkjast út á göturnar til að taka þátt í fjörinu með vinnuvélunum. Ég sá t.d. virðulega húsfrú með ryksugu að fjarlægja snjó af stétt sinni en það náðist því miður ekki á filmu.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Tilgangur þessarar rásar er einnnig að vera ákveðinn sýningargluggi fyrir eigin upptökur sem ég býð til sölu á vefsvæði sem kallast Pond5 og hér er mitt eigið svæði. pond5.com/artist/Just2Icelandic?ref=Just2Icelandic
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comMengun frá eldgosinu við Sundhnúka skoðuð með Drone-Time Lapse formatiÍslandsrásin2024-03-30 | Hér er gasmengunin (SO2) sýnd með time-lapse formati frá dróna en þetta var tekið 24-25 Mars frá eldgosi númer 7 við Sundhnúka. Sólin lætur eitrið poppa nokkuð vel svo dreifingin er óvenjulega vel sýnileg og ekkert sérlega kræsileg til innöndunar.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comHinir nýju varnargarðar í kringum Grindavík - 12 mars 2024Íslandsrásin2024-03-14 | Þetta er nokkuð góð heildarmynd af framkvæmdunum við hina nýu varnargarða umhverfis Grindavík. Staðsetning þeirra sést vel en þó er töluverð vinna eftir við að byggja þá í fulla hæð. Svo verður bara að koma í ljós hvort þeir dugi en á það varð að reyna að sjálfsögðu.
Tónlistin á rásinn er frá Envato Elements. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða falast eftir myndefni eða sérpanta myndatöku með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta netfangið til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comEldsvoði í Hafnarfirði 11. Mars 2024 - Iðnaðarhúsnæði brennurÍslandsrásin2024-03-12 | Það var myndaðist heilmikill reykur þegar þetta hús brann á iðnaðarsvæði gegnt álverinu en það virðist vera smíðað úr tvemur 40 feta gámum með viðbættu risi. Ég var á ferð með dróna og fyrst ég náði upphafssenu slökkvistarfs þá leyfði ég upptökunni að malla á meðan piltarnir tóku stjórn á aðstæðum.
Tónlist á rásinni er frá Ebvato sem býður brábærst úrval og einfalda leyfisveitingu. https://1.envato.market/za76yO
Ef þú vill koma á framfæri ábendingum eða athugasemdum um þessa rás, eða falast eftir myndefni eða myndatökum með dróna eða öðrum búnaði þá er þetta adressan til þess. Góða skemmtun og takk fyrir að heimsækja Íslandsrásina.
GylfiGylfa justicelandic@gmail.comÍslensk Bíómyndabrot - Löggulíf - Fyrsti Íslenski Bíó-BílaeltingaleikurinnÍslandsrásin2024-03-05 | Löggulíf frá 1985 var þriðja myndin um Þór og Daníel og þrátt fyrir að vera ekki sú besta í þrennunni þá átti hún ákveðna spretti og skartar m.a. fyrsta bílaeltingaleik hinnar íslensku kvikmyndasögu og þar mátti t.d. sjá "Stunt Drivers" með hjálma sem þótti frekar skondið. En atriðið lifir sem fyrsta sinnar tegundar og margir vildu eflaust eiga eitthvað af þessum bílum í toppstandi í dag.